Claudio Ranieri, stjóri Fulham, reynir að styrkja leikmannahóp liðsins þessa stundina.
Fulham hefur verið í miklu basli á tímabilinu og er sjö stigum frá öruggu sæti er 23 leikir eru búnir.
Vörn liðsins er þá sú versta í deildinni en Fulham hefur fengið á sig 51 mark í aðeins 23 leikjum.
Nú er greint frá því að metnaðurinn sé til staðar hjá Fulham sem reynir við varnarmanninn Mehdi Benatia.
Benatia hefur lengi verið að spila í hærri gæðaflokk en hann er á mála hjá Juventus á Ítalíu.
Hann fær þó ekki reglulega að spila þar og hefur aðeins komið við sögu í fimm deildarleikjum á tímabilinu.
Fulham reynir að lokka Benatia til London en hann hefur einnig leikið fyrir lið eins og Roma og Bayern Munchen.