Juventus vill mikið fá miðjumanninn Aaron Ramsey frá Arsenal í janúarglugganum frekar en í sumar.
Ramsey mun yfirgefa Arsenal frítt næsta sumar og virðist vera búinn að semja við Juventus.
Ítalska félagið vill þó ekki bíða svo lengi og er tilbúið að láta Arsenal fá leikmann í skiptum.
Leikmaðurinn umtalaði er Emil Audero en hann er markvörður og er í láni hjá Sampdoria.
Tuttosport segir að Juventus hafi boðið Arsenal að fá Audero á móti en hvort skiptin eigi sér stað verður að koma í ljós.