Það er enginn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni sem hefur gefið eins margar sendingar á tímabilinu og Jorginho hjá Chelsea.
Jorginho var fenginn til Chelsea frá Napoli í sumar en hann fylgdi Maurizio Sarri til félagsins.
Jorginho elskar fátt meira en að hafa boltann á miðjunni og er fljótur að koma honum á liðsfélaga.
Stuðningsmenn Chelsea eru þó farnir að spyrja spurninga því Jorginho leggur ekki upp mörk.
Hann hefur gefið 2,077 sendingar á tímabilinu sem er meira en allir aðrir leikmenn.
Þrátt fyrir það þá hefur Ítalinn ekki náð að leggja upp mark sem er í raun sturluð tölfræði.
MOST #PL PASSES THIS SEASON
2,077 – Jorginho
1,960 – Aymeric Laporte
1,873 – Antonio Rudiger
1,798 – Virgil van Dijk pic.twitter.com/EYSmqlvkw3— Premier League (@premierleague) 23 January 2019