Barcelona hefur fest kaup á miðjumanninum Frenkie De Jong en hann kemur til félagsins frá Ajax.
Þetta var staðfest í dag en De Jong mun ekki ganga í raðir liðsins fyrr en í sumar.
Hann er sagður kosta um 70 milljónir punda og gerir hann fimm ára samning við spænska félagið.
Mörg stórlið voru orðuð við De Jong sem er 21 árs gamall hollenskur landsliðsmaður.
De Jong mun klára tímabilið í Hollandi en verður svo leikmaður Barcelona í sumar.