John Obi Mikel er að snúa aftur til Englands þar sem hann gerði garðinn frægan með Chelsea.
Mikel er án félags þessa stundina en hann yfirgaf kínverska félagið Tianjin TEDA á dögunum.
Mikel þekkir það vel að spila á Englandi en hann spilaði 249 deildarleiki fyrir Chelsea á 11 árum.
Hann kvaddi félagið árið 2017 og hélt til Kína en entist ekki lengi þar og er nú frjáls ferða sinna.
Northern Echo segir að Mikel sé að skrifa undir samning við Middlesbrough sem leikur í næst efstu deild.