Framherjinn Mario Balotelli hefur gert samning við franska félagið Marseille. Þetta var staðfest í dag.
Balotelli hefur undanfarin tvö ár leikið með Nice en hefur lítið fengið að spila á þessu tímabili.
Nice vildi losna við leikmanninn sem gerir sex mánaða lánssamning við Marseille sem reyndi að fá hann í sumar.
Marseille gæti svo fengið Balotelli endanlega í sumar ef hann stenst væntingar hjá félaginu.
Hann er búinn að samþykkja tilboð félagsins en á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun.