fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Þjálfari Kolbeins reiður út í leikmann: Laug því að hann væri meiddur til að komast burt

Victor Pálsson
Mánudaginn 21. janúar 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vahid Halilhodzic, þjálfari Nantes í Frakklandi, er óánægður með varnarmanninn Matt Miazga sem er í láni hjá félaginu.

Miazga kom til Nantes í sumar frá Chelsea en hann skrifaði undir lánssamning við franska félagið.

Miazga hefur ekki spilað leik síðan í október og vill komast burt frá félaginu. Hann laug um það að vera meiddur svo Halilhodzic gat ekki notað hann.

Það eru mikil vandræði hjá Nantes þessa dagana en Kolbeinn Sigþórsson er á mála hjá félaginu en fær ekkert að spila.

,,Þessi kúgun sem ég var að tala um í gær var varðandi Matt Miazga,“ sagði Halilhodzic.

,,Hann sannfærði mig um að hann væri með verk í bakinu. Eftir að hafa farið í skoðun þá kom í ljós að það var ekkert vandamál þarna.“

,,Hann vill bara fá að yfirgefa félagið. Í morgun var Miazga svo mættur til London, til Chelsea. Hann sagði engum frá.“

,,Þetta pirrar mig mikið en við þurfum að koma þessu í gegn, jafnvel þó ég sé vonsvikinn með það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta