Romelu Lukaku, leikmaður Manchester United, er orðaður við brottför frá félaginu þessa dagana.
Lukaku kom til United frá Everton árið 2017 en félagið borgaði 75 milljónir punda fyrir Belgann.
Hann stóð sig nokkuð vel á sínu fyrsta tímabili en hefur verið í töluverðu basli í vetur.
Enskir miðlar segja að Lukaku sé að íhuga að fara en hann er ekki fyrsti maður á blað hjá Ole Gunnar Solskjær.
Lukaku svaraði þessum sögusögnum í dag og segir að það sé ekkert til í þessum fréttum.
,,Þegar hatrið er ekki nóg þá byrja þeir að ljúga,“ skrifaði Lukaku á Instagram.