Ashley Cole er að ganga í raðir Derby frá LA Galaxy. Frá þessu greinir Sky Sports, fréttastofan í dag.
Cole er 38 ára gamall en stjóri Derby er Frank Lampard, góður vinur Cole.
Cole og Lampard léku saman hjá Chelsea og áttu þar frábæra tíma en Cole hefur síðustu ár verið í Bandaríkjunum.
Derby leikur í næst efstu deld en Cole gerir samning við félagið út þessa leiktíð.
Lampard langar að reyna að komast upp í úrvalsdeildina og telur að reynsla Cole geti hjálpað til þar.
Derby vonast til að klára samning við Cole þegar líða tekur á vikuna.