Mohamed Salah skoraði í dag sitt 50. mark í ensku úrvalsdeildinni er Liverpool vann 4-3 sigur á Crystal Palace.
Salah skoraði tvennu í leiknum og hefur nú gert 50 mörk í 72 leikjum sem er magnaður árangur.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að Salah gæti verið búinn að skora meira og kennir sjálfum sér um það.
,,Þetta er magnað afrek frá leikmanni í heimsklassa,“ sagði Klopp glaður eftir sigurinn í dag.
,,Hann hefur verið taka skref í rétta átt síðustu mánuði. Vá, þetta er ótrúleg tala.“
,,Ég heyrði að menn eins og Alan Shearer, Ruud van Nistelrooy og Andy Cole hafi náð þessu fyrr – góðir framherjar!“
,,Kannski hefði hann skorað meira og fyrr ef ég hefði ekki spilað honum á hægri vængnum, það er mér að kenna!“