Adrien Rabiot, leikmaður Paris Saint-Germain, verður ekki með liðinu í deildinni um helgina.
Rabiot mun líklega ekkert spilar þar til á næstu leiktíð en hann hefur sagt PSG að hann sé á förum í sumar.
Thomas Tuchel, stjóri PSG, ætlar því ekkert að nota leikmanninn sem hefur verið hent í varaliðið.
Tuchel staðfesti það í dag að lið helgarinnar yrði án Rabiot sem er sagður vera á leið til Barcelona.
Hann verður líklega partur af varaliðinu alveg þar til í sumar nema hann ákveði að taka U-beygju og framlengja samning sinn.