Bakvörðurinn Andrew Robertson hefur skrifað undir nýjan samning við lið Liverpool á Englandi.
Robertson er 24 ára gamall Skoti en hann kom til Liverpool frá Hull City árið 2017.
Hann byrjaði mikið á bekknum hjá þeim rauðu en kom svo sterkur inn eftir meiðsli Alberto Moreno.
Robertson horfði aldrei til baka eftir meiðsli Spánverjans og gerði vinstri bakvarðarstöðuna að sinni.
Hann gerði nýjan fimm ára samning við Liverpool í dag og er samningsbundinn til ársins 2024.