Andrew Robertson skrifaði í dag undir nýjan samning við Liverpool og er nú samningsbundinn til ársins 2024.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var ánægður eftir undirskrift Robertson sem er orðinn fastamaður í vinstri bakverði.
Það tók ekki langan tíma að semja við Robertson sem kom frá Hull árið 2017.
,,Eftir allar samningaviðræður sem ég hef verið partur af, þetta var klárað á mettíma,“ sagði Klopp.
,,Það er óhætt að segja að Robbo hafi ekki hikað í eina sekúndu þegar við ræddum að framlengja samninginn hans.“
,,Hann gæti verið frá Glasgow upphaflega en allt við hann öskrar Liverpool.“