Leeds United festi kaup á markverðinum Kiko Casilla í dag en hann kemur til liðsins frá Real Madrid.
Casilla hefur spilað þónokkra leiki fyrir Real en hefur þó aldrei verið aðalmarkvörður liðsins.
Hann vildi sjálfur mikið komast til Englands og vill hjálpa Leeds að komast aftur í ensku úrvalsdeildina.
,,Leeds United er sögufrægt félag á Englandi með risastóran aðdáandahóp sem er fullkomið,“ sagði Casilla.
,,Það er minn vilji að hjálpa félaginu að komast aftur á sinn stað í ensku úrvalsdeildinni.“
Leeds er með fjögurra stiga forskot á toppi Championship-deildarinnar þegar 19 leikir eru eftir.