Rui Faria fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho er við það að taka við Al Duhail í Katar samkvæmt fréttum.
Faria var aðstoðarmaður Jose Mourinho í fjölda ári en sagði upp starfi sínu í maí á síðasta ári.
Hann vildi sjálfur fara að stýra liði og hefur farið yfir möguleika sína, síðustu mánuði.
Faria er mættur til Katar í viðræður þar sem hann gæti farið að keppa við Heimi Hallgrímsson.
Heimir tók við Al-Arabi í desember og er að smíða saman algjörlega nýtt lið en Heimir hefur losað sig við tólf leikmenn.