Atletico Madrid á Spáni reynir þessa dagana að næla í framherjann Alvaro Morata frá Chelsea.
Morata er sjálfur sagður vilja komast burt en hann hefur ekki verið upp á sitt besta á Englandi.
Nú er greint frá því að Atletico sé búið að bjóða Chelsea að fá leikmann í staðinn fyrir Morata.
Chelsea má velja á milli þeirra Nikola Kalinic og Gelson Martins sem fá lítið að spila þessa dagana.
Kalinic er framherji en Martins spilar á vængnum, þeir gengu báðir í raðir Atletico í sumar.
Chelsea mun ekki selja Morata nema að arftaki hans verði fundinn og gæti Kalinic verið lausn við þeim vanda.