Cardiff City í ensku úrvalsdeildinni hefur náð samkomulagi við Everton um að fá framherja í láni.
Sky Sports fullyrðir þessar fréttir í kvöld en leikmaðurinn umtalaði er Oumar Niasse.
Niasse er 28 ára gamall sóknarmaður en hann er alls ekki fyrstur á blað hjá Marco Silva og Everton.
Hann mun skrifa undir lánssamning út tímabilið en Cardiff þarf mikið á markaskorara að halda.
Niasse mun því leika með Aroni Einari Gunnarssyni eftir að hafa spilað með Gylfa Þór Sigurðssyni hjá Everton.
Niasse hefur spilað 31 deildarleik fyrir Everton á þremur árum og skorað átta mörk.