Ederson, markvörður Manchester City, er ansi góður með löppunum og var þess vegna fenginn til félagsins.
Pep Guardiola, stjóri City, elskar að spila úr vörninni og var það stór ástæða þess að hann var keyptur.
Ederson er svo góður að gefa boltann að hann hefur nú þegar lagt upp mark á tímabilinu.
Það er annað en þeir Jorginho hjá Chelsea og Naby Keita hjá Liverpool geta sagt þrátt fyrir að hafa kostað samanlagt 110 milljónir.
Keita og Jorginho eru báðir að spila sitt fyrsta tímabil í deildinni en hafa byrjað misvel.
Keita kom frá þýska liðinu RB Leipzig í sumar og Jorginho fylgdi Maurizio Sarri til Chelsea frá Napoli.
Það er ekki frábær tölfræði að vera með færri stoðsendingar en markvörður þegar tímabilið er hálfnað.