Það fóru fram tveir leikir í Fótbolta.net mótinu í kvöld og var fyrsti leikur í A-deild spilaður.
HK og Grindavík áttust við í Kórnum en þeim leik lauk með 1-1 jafntefli þar sem hart var barist.
Aron Jóhannsson kom Grindavík yfir á 55. mínútu leiksins áður en Birkir Valur Jónsson jafnaði metin fyrir HK á 73. mínútu.
Víkingur Ólafsvík og Vestri áttust þá við og lauk þeim einnig með 1-1 jafntefli. Vestri komst yfir áður en Víkingar jöfnuðu í síðari hálfleik.
HK 1-1 Grindavík
0-1 Aron Jóhannsson(55′)
1-1 Birkir Valur Jónsson(73′)
Víkingur Ó. 1-1 Vestri
0-1 Hákon Ingi Einarsson(20′)
1-1 Bjartur Bjarmi Barkarson(65′)