Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, er á förum frá félaginu í sumar og er á leið til Ítalíu.
Juventus hefur tryggt sér þjónustu leikmannsins sem kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans rann út.
Ramsey verður samningslaus í júlí en þrátt fyrir að vera á förum fær hann reglulega að spila.
Unai Emery, stjóri Arsenal, ræðir við Ramsey á hverjum degi og hikar ekki við að nota leikmanninn.
,,Ég segi við hann á hverjum degi, að við þurfum á frammistöðu að halda frá honum,“ sagði Emery.
,,Ég var mjög ánægður með hann í síðasta leik. Hann bað mig um að fá að spila gegn Blackpool.“
,,Framtíðin er fyrir hann og hans fjölskyldu. Hann leggur sig fram á hverjum degi á æfingasvæðinu.“