Liverpool er í vandræðum þessa dagana en margir varnarmenn liðsins eru að glíma við meiðsli.
Þeir Dejan Lovren, Joe Gomez og Joel Matip eru allir frá og er Virgil van Dijk eini heili miðvörðurinn.
Í dag er greint frá því að Liverpool sé að skoða það að fá varnarmann Burnley á láni út tímabilið.
Um er að ræða James Tarkowski en hann er mikilvægur fyrir Burnley og má ekki fara endanlega nema fyrir 50 milljónir punda.
Jurgen Klopp er talinn vera að skoða þann möguleika að semja við Tarkowski út tímabilið.
Miðjumaðurinn Fabinho þarf líklega að spila í hjarta varnarinnar í næsta leik gegn Brighton.