Per Mertesacker, fyrrum fyrirliði Arsenal, segir að hann sé ánægður með að hafa spilað lítið á síðustu leiktíð.
Mertesacker tók aðeins þátt í 12 leikjum Arsenal á síðasta tímabili en hann ákvað að leggja skóna á hilluna í sumar.
Þessi 33 ára gamli leikmaður segir að pressan hafi verið mikil undir lokin og sætti hann sig við það að bara æfa með liðinu.
,,Sérstaklega á síðasta árinu mínu, ég fann fyrir pressu og þetta var mjög vandræðalegt stundum,” sagði Mertesacker.
,,Ég var alveg ánægður með það að vera ekki að spila, bara það að æfa var nóg fyrir mig.”