Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Starfsfólk Manchester United trúir því að Jose Mourinho gæti verið rekinn frá félaginu í næstu viku. (Mail)
United harðneitar því hins vegar að Zinedine Zidane sé inni í myndinni til að taka við af Mourinho. (ESPN)
Barcelona vill frekar kaupa Paul Pogba frá United næsta sumar en í janúarglugganum. (Express)
Manchester City er tilbúið borga metupphæð eða 200 milljónir punda fyrir hinn unga Kylian Mbappe sem spilar með PSG. (Sun)
Alvaro Morata, leikmaður Chelsea, gæti verið seldur til Juventus í janúarglugganum. (Sun)
Chelsea er með augastað á hinum 15 ára gamla Ethan Hazard sem er bróðir Eden Hazard, leikmanns liðsins. (Mirror)
Philippe Coutinho, fyrrum leikmaður Liverpool, sannfærði markvörðinn Alisson um að ganga í raðir enska liðsins. (Goal)