Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH í Pepsi-deild karla, býst við því að hann haldi áfram með félagið eftir að tímabilinu lauk.
Ólafur tók við FH fyrir sumarið en gengi liðsins var undir væntingum og hafna þeir svarthvítu í fimmta sæti deildarinnar.
Sögusagnir hafa verið um að Ólafur verði ekki áfram í Hafnafirði en hann staðfesti þó við Fótbolta.net í dag að planið væri að vera áfram.
„Við munum halda plani með því sem að við lögðum upp með og það verða einhverjar breytingar, sem að hefur ekkert með það að gera hvar við enduðum í mótinu. Ég geri fastlega ráð fyrir því að ég verði áfram nema að mér verði sparkað,“ sagði Ólafur við Fótbolta.net.
FH mun ekki leika í Evrópukeppni á næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa unnið Stjörnuna 1-0 í lokaumferðinni í dag.