Lið Chelsea á Englandi er þekkt fyrir það að senda marga leikmenn annað á láni en félagið hefur stundað það í mörg ár.
Chelsea kaupir marga unga leikmenn á hverju ári en oftar en ekki þá fá þeir aldrei tækifæri í aðalliðinu.
FIFA er nú sterklega að íhuga það að breyta reglum þegar kemur að leikmönnum sem sendir eru á lán.
Búist er við að þessi nýja regla leyfi hverju félagi aðeins að lána sex leikmenn út á hverju tímabili.
Það skapar mikil vandræði fyrir Chelsea en alls eru 40 leikmenn félagsins að spila annars staðar þessa stundina.
FIFA vill sjá til þess að þessir leikmenn séu sendir annað til að þróa sinn leik frekar en að hækka í verði svo að félagið geti grætt peninga.