Reynir Leósson, sérfræðingur Pepsi markanna vill meina að Anton Ari Einarsson, markvörður Vals hafi kostað liðið stig gegn FH á sunnudag.
Anton Ari missti af boltanum í sigurmarki FH í uppbótartíma en hann fór í einvígi við Guðmund Kristjánsson.
Margir töldu að brotið hefði verið á Antoni en Reynir var ekki á því og skellti skuldinni á hann.
„Mér finnst bara vanta kraft og styrk í Anton Ara að ganga frá þessu augnabliki,“ sagði Reynir í Pepsimörkunum.
„Hann er að reyna að grípa boltann en leikurinn er búinn ef hann bara fer og kýlir þennan bolta. Hann var kominn með höndina það hátt, en hann var aldrei að fara að ná að grípa hann.“
„Hann var aðeins of linur fyrir minn smekk í þessu atviki og það kostaði þá tapið,“
Umræðuna má sjá hér að neðan.