Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Andrea Agnelli, stjórnarformaður Juventus, vill sjá félagið kaupa Leroy Sane frá Manchester City. (Calciomercato
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður LA Galaxy, er með tilboð frá Malmö en hann hóf ferilinn hjá félaginu. (Sun)
Manchester City mun berjast við Manchester United um miðjumann Ajax, Frenkie de Jong. (Mirror)
Annar miðjumaður Ajax, David Neres, er á óskalista bæði Tottenham og Roma. (Telegraaf)
Fulhma íhugar að bjóða 18 milljónir punda í Maxwel Cornet, 21 árs gamlan framherja Lyon. (Sun)
Kyle Walker, leikmaður Manchester City, vill fá að spila hægri bakvörð með enska landsliðinu en hann var notaður í hafsent á HM. (MAil)
Steven Caulker, fyrrum leikmaur Cardiff og QPR er líklega á leið til Wigan í næst efstu deild. (Mail)