Það fer fram spennandi viðureign í enska boltanum í dag er lið West Ham og Chelsea eigast við á London Stadium.
Það kemur fátt á óvart í byrjunarliði Chelsea í dag en Olivier Giroud er í fremstu víglínu í stað Alvaro Morata.
West Ham saknar framherjans Marko Arnautovic sem er tæpur og getur ekki tekið þátt. Liðið mun sakna hans í dag enda einn mikilvægasti leikmaður liðsins.
Hér má sjá byrjunarliðin.
West Ham: Fabianski, Zabaleta, Balbuena, Diop, Masuaku, Rice, Obiang, Noble, Yarmolenko, Anderson, Antonio
Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Luiz, Rudiger, Alonso, Jorginho, Kante, Kovacic, Willian, Hazard, Giroud