Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í liði Everton í dag sem mætir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Breytingar eru á liði Arsenal frá því á fimmtudaginn er liðið lék við Vorskla Poltava í Evrópudeildinni.
Petr Cech er kominn aftur í markið í stað Bernd Leno og Alexandre Lacazette byrjar ásamt Pierre-Emerick Aubameyang.
Hér má sjá byrjunarliðin.
Arsenal: Cech, Bellerin, Sokratis, Mustafi, Monreal, Xhaka, Torreira, Ramsey, Ozil, Lacazette, Aubameyang
Everton: Pickford, Digne, Zouma, Keane, Kenny, Gueye, Davies, Walcott, Sigurdsson, Richarlison, Calvert-Lewin