Aston Villa tapaði nokkuð óvænt í ensku Championship-deildinni í dag er liðið mætti Sheffield Wednesday.
Villa þurfti að sætta sig við 2-1 tap í dag en Birkir Bjarnason sat allan tíman á varamannabekknum.
Það var John McGinn sem skoraði mark Villa í leiknum og er óhætt að segja að það hafi verið stórkostlegt.
McGinn smellhitti boltann á lofti fyrir utan teig en tæknin sem hann notaði í skotinu er aðdáunarverð.
Sjón er sögu ríkari en markið má sjá hér.
Championship goal of the season 2018/19!!! John McGinn??#avfc pic.twitter.com/FvKFLZfSit
— Kristoffer Freiding (@KristofferF) 22 September 2018
Incredible goal by Aston Villa’s John McGinn. (Credit: @wittonroad)pic.twitter.com/HpdtCfl73v
— R™ (@RealTalkMUFC) 22 September 2018