Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna fór fram í dag en Breiðablik var nú þegar búið að tryggja sér titilinn.
Blikar enda mótið þó á tapi gegn Val, 3-2. Þetta var aðeins annað tap liðsins í deildinni í sumar.
Þór/KA var án lykilmanna í lokaleiknum gegn Stjörnunni og tapaði sínum þriðja leik í sumar. Stjarnan hafði betur, 2-0.
Blikar enda mótið í efsta sætinu og þar á eftir koma Þór/KA, Stjarnan og Valur. FH og Grindavík fara niður um deild.
Hér má sjá úrslit og markaskorara í lokaumferðinni.
Valur 3-2 Breiðablik
1-0 Dóra María Lárusdóttir
2-0 Málfríður Erna Sigurðardóttir
3-0 Fanndís Friðriksdóttir
3-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir
3-2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Stjarnan 2-0 Þór/KA
1-0 Lára Kristín Pedersen
2-0 Guðmunda Brynja Óladóttir
Selfoss 1-0 ÍBV
1-0 Magdalena Anna Reimus(víti)
HK/Víkingur 0-0 KR
Grindavík 2-0 FH
1-0 Helga Guðrún Kristinsdóttir
2-0 Rio Hardy