Joe Hart, markvörður Burnley á Englandi, fær tækifæri til að sanna sig fyrir Gareth Southgate í dag.
Hart hefur misst sæti sitt í enska landsliðinu en hann var lengi fastamaður á milli stanganna.
Hart er nú orðinn fjórði eða fimmti kostur Englands eftir mjög erfitt gengi síðustu ár en hann var á láni hjá West Ham á síðustu leiktíð.
Hart samdi endanlega við Burnley í sumar og hefur þótt standa sig vel í byrjun tímabils.
Southgate verður staddur á leik Burnley og Bournemouth í dag og vonast Hart til að ná að sanna sig fyrir stjóranum.