Fulham 1-1 Watford
0-1 Andre Gray(2′)
1-1 Aleksandar Mitrovic(78′)
Fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið en viðureign Fulham og Watford fór fram.
Leikurinn byrjaði fjöruglega í dag er Andre Gray kom gestunum í Watford yfir eftir aðeins tvær mínútur.
Staðan var lengi 1-0 fyrir Watford en þegar 12 mínútur voru eftir jafnaði framherjinn Aleksandar Mitrovic fyrir Fulham.
Það mark reyndist það síðasta í leiknum og lokastaðan á Craven Cottage, 1-1.