Það er ÍR sem mun fara niður í 2.deildina ásamt Selfoss en lokaumferð Inkasso-deildarinnar fór fram í dag.
ÍR og Magni áttust við í rosalegum leik í Breiðholti en ljóst var að sigurliðið myndi halda sæti sínu í deildinni.
Magni komst yfir snemma leiks í dag áður en ÍR-ingar svöruðu fyrir og með tveimur mörkum og staðan orðin 2-1.
Gunnar Örvar Stefánsson skoraði sitt annað mark fyrir Magna á 41. mínútu og staðan jöfn í leikhléi 2-2.
Það var svo Sigurður Marinó Kristjánsson sem tryggði Magna sigur á 78. mínútu leiksins og áframhaldandi veru í næst efstu deild.
Þór endar í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði HK eftir sannfærandi 3-1 sigur á Leikni Reykjavík.
Víkingur Ólafsvík er í sætinu fyrir neðan en liðið kom til baka gegn Fram og vann að lokum 2-1 sigur.
Hér má sjá öll úrslit og markaskorara dagsins en tveir leikir eru í gangi þessa stundina, Haukar – HK og ÍA – Þróttur R.
ÍR 2-3 Magni
0-1 Gunnar Örvar Stefánsson
1-1 Andri Jónasson
2-1 Ágúst Freyr Hallsson
2-2 Gunnar Örvar Stefánsson
2-3 Sigurður Marinó Kristjánsson
Þór 3-1 Leiknir R.
1-0 Jóhann Helgi Hannesson
2-0 Jakob Snær Árnason
2-1 Sólon Breki Leifsson
3-1 Alvaro Montejo
Fram 1-2 Víkingur Ó.
1-0 Guðmundur Magnússon
1-1 Ástbjörn Þórðarson
1-2 Kwame Quee(víti)
Njarðvík 2-1 Selfoss
1-0 Kenneth Hogg
1-1 Magnús Þór Magnússon(sjálfsmark)
2-1 Bergþór Ingi Smárason