Newcastle United er í vandræðum eftir leik liðsins við Crystal Palace í dag á Selhurst Park.
Það var alls ekki boðið upp á neina flugeldasýningu í dag en leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Einn stuðningsmaður Newcastle varð sér til skammar í dag er hann reyndi að meiða Aaron Wan-Bissaka, leikmann Palace.
Þessi stuðningsmaður kastaði bjórflösku í Wan-Bissaka en varnarmaðurinn fékk flöskuna beint í hálsinn.
Newcastle á von á refsingu frá enska knattspyrnusambandinu eftir þetta atvik.
Replays appear to show a Newcastle fan hitting Wan-Bissaka with a beer bottle
— Ed Malyon (@eaamalyon) 22 September 2018