Liverpool hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu en liðið er ósigrað í sex leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool hefur unnið fyrstu sex leiki sína í deildinni og er á toppnum þessa stundina með fullt hús stiga.
Einnig hefur liðið spilað einn leik í Meistaradeildinni og hafði betur gegn Paris Saint-Germain, 3-2.
Þetta er besta byrjun Liverpool í sögunni en liðinu hefur aldrei tekist að vinna sjö leiki í röð í byrjun leiktíðar.
Þetta er þó í þriðja sinn sem félagið vinnur sex leiki í röð í deildinni en það gerðist 1978 og 1990.
Liðið var í engum vandræðum með Southampton í dag og vann að lokum sannfærandi 3-0 sigur.