Það eru Afturelding og Grótta sem munu spila í Inkasso-deild karla á næstu leiktíð eftir að hafa tryggt sér sæti í dag.
Afturelding vann 3-1 sigur á Hetti eftir að hafa lent undir snemma leiks og var Höttur með forystuna eftir fyrri hálfleik.
Afturelding kom hins vegar til baka í þeim síðari og vann að lokum sannfærandi sigur og endar í efsta sæti deildarinnar.
Grótta var á sama tíma í engum vandræðum með lið Hugins sem var fallið úr deildinni. Grótta vann 4-0 sigur.
Höttur mun fara niður ásamt Huginn eftir tapið gegn Aftureldingu og á sama tíma vann Leiknir F. 3-0 sigur á Víði og heldur sæti sínu.
Hér má sjá úrslit og markaskorara dagsins.
Höttur 1-3 Afturelding
1-0 Daníel Steinar Kjartansson
1-1 Andri Freyr Jónasson
1-2 Andri Freyr Jónasson
1-3 Wentzel Steinarr R Kamban
Grótta 4-0 Huginn
1-0 Valtýr Már Michaelsson
2-0 Óliver Dagur Thorlacius
3-0 Arnar Þór Helgason
4-0 Orri Steinn Óskarsson
Kári 1-2 Vestri
1-0 Andri Júlíusson
1-1 Daniel Osafo-Badu
1-2 Pétur Bjarnason
Leiknir F. 3-0 Víðir
1-0 Povilas Krasnovskis
2-0 Povilas Krasnovskis(víti)
3-0 Almar Daði Jónsson
Tindastóll 3-2 Völsungur
1-0 Stefan Antonio Lamanna
1-1 Elvar Baldvinsson
2-1 Stefan Antonio Lamanna
3-1 Stefan Antonio Lamanna
3-2 Sæþór Olgeirsson
Þróttur V. 3-1 Fjarðabyggð
1-0 Elvar Freyr Arnþórsson
2-0 Jordan Chase Tyler
2-1 Aleksandar Stojkovic
3-1 Kian Viðarsson