Huddersfield á möguleika á að ná í sinn fyrsta sigur um helgina er liðið mætir Leicester City í ensku úrvalsdeildinni.
Huddersfield er eitt af fjórum liðum sem er enn án sigurs eftir fimm umferðir en liðið er með tvö stig.
Leicester hefur unnið tvo leiki af fimm og er með sex stig. Liðið situr í 12. sæti deildarinnar.
Leicester er sigurstranglegra fyrir leikinn á morgun en leikurinn fer fram á King Power vellinum.
Upplýsingar um leikinn:
Laugardagur – 14:00
Leikstaður: King Power Stadium
Á síðustu leiktíð: Leicester 3-0 Huddersfield
Dómari: David Coote
Stuðlar á Lengjunni:
Leicester – 1,47
Jafntefli – 3,18
Huddersfield – 5,09
Meiðsli:
Leicester – James
Huddersfield – Sobhi, Bacuna(tæpur), Quaner(tæpur)