Miðjumaðurinn Heiðar Ægisson hefur skrifað undir nýjan samning við lið Stjörnuna í Pepsi-deild karla.
Þetta var staðfest í dag en samningur Heiðars átti að renna út í næsta mánuði.
Heiðar kom við sögu hjá Stjörnunni fyrr í sumar áður en hann meiddist illa og hélt svo út til Bandaríkjanna í skóla.
Heiðar er annar leikmaðurinn sem skrifa undir á stuttum tíma en Guðjón Baldvinsson framlengdi einnig á dögunum.
Stjarnan hefur samið við Heiðar Ægisson til næstu þriggja ára. Heiðar hefur verið Stjörnunni geysilega mikilvægur á undanförnum árum. Það er stjórn knattspyrnudeildar mikið fagnaðarefni að Heiðar skuli framlengja við félagið enda fer þar uppalinn Stjörnumaður með blátt hjarta! pic.twitter.com/am751olt1M
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) 20 September 2018