Iago Aspas, leikmaður Celta Vigo, segir að nokkur félög hafi sýnt sér áhuga í sumar eftir gott tímabil með liðinu.
Talað var um að Real Madrid og Atletico Madrid hafi sýnt leikmanninum áhuga og býst hann við að þær fregnir séu sannar.
,,Ég hringdi ekki í nein önnur lið. Það er þó rétt að nokkur af þeim hafi haft samband við okkur,“ sagði Aspas.
,,Ég er alltaf hreinskilinn og einhver sem hafði áhuga á mér þurfti að ná samkomulagi við Celta fyrst og svo sjáum við til.“
,,Það voru stór lið sem sýndu áhuga eins og Atletico og Real Madrid samkvæmt blöðunum og ég býst við að það sé rétt.“
,,Félagið sagði aldrei neitt við mig. Ég býst við að viðræður hafi farið af stað og svo ekkert meira.“