KSÍ hefur dæmt Völsungi 0-3 sigur í leiknum sem átti að fara fram í gær, Huginn og Völsungur mættu þá ekki á sama völlinn. Þetta kemur fram á vef KSÍ.
Leikurinn átti að vera endurtekinn klukkan 16:30 í gær en leikur liðanna sem var spilaður í ágúst var á dögunum gerður ógildur eftir dómaramistök.
Í tilkynningu KSÍ var greint frá því að leikurinn skildi fara fram á Seyðisfjarðarvelli, heimavelli Hugins.
Í dag ákvað KSÍ hins vegar að færa leikinn yfir á Fellavöll á Egilsstöðum eftir að hafa fengið skilaboð frá Seyðisfirði um að völlurinn þar væri óleikhæfur.
Margir hafa beðið eftir niðurstöðu í þessu máli en á vef KSí var í dag staðfest að Völsungi hefði verið dæmdur 0-3 sigur.
Óvíst er hvernig málið mun þróast en ekki er ólíklegt að Huginn muni kæra þessa niðsturöðu.
Ekki náðist í Klörtu Bjartmarz, framkvæmdarstjóra KSÍ eða Birki Sveinsson mótastjóra við vinnslu frétarinnar.
Á vef KSÍ stendur að Huginn hafi ekki mætt til leiks. Völsungur er því með 40 stig fyrir lokaumferðina og geta enn farið upp. Huginn er löngu fallið úr deildinni.