fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433

Gríðarlegt áfall fyrir Þór/KA – Lykilmenn missa af síðustu leikjunum

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 20. september 2018 08:00

Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þór/KA varð fyrir áfalli í gær í Pepsi-deild kvenna en ljóst er að þrír lykilmenn missa af síðustu leikjum tímabilsins.

Þær Ariana Calderon, Bianca Sierra og Stephany Mayor verða ekki með liðinu gegn Stjörnunni á laugardag í lokaleik Pepsi-deildar kvenna.

Einnig munu þær þrjár ekki taka þátt í leik liðsins við Wolfsburg í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þann 26. september.

Ástæðan er sú að landsliðsþjálfari Mexíkó vill fá leikmennina til æfinga tveimur vikum áður en spilað er í undankeppni HM.

Tilkynning Þórs/KA:

Fyrr í dag var staðfest að mexíkósku landsliðskonurnar þrjár í herbúðum Þórs/KA, Ariana Calderon, Bianca Sierra og Stephany Mayor, fá ekki að ljúka tímabilinu með liðinu. Þær munu missa af lokaleik liðsins í Pepsi-deildinni gegn Stjörnunni á laugardag og útileiknum gegn VfL Wolfsburg í 32ja liða úrslitum Meistaradeildarinnar miðvikudaginn 26. september. Um þetta fá þjálfari og stjórn Þórs/KA engu ráðið þrátt fyrir mikinn samningsvilja og tilslakanir af hálfu liðsins.

Ástæða þessa er að landsliðsþjálfari Mexíkó hefur krafist þess að fá leikmennina til æfinga tveimur vikum fyrir undankeppni Mið- og Norður-Ameríkuríkja (CONCACAF) fyrir HM sem fram fer í Frakklandi á næsta ári. Fyrsti leikur liðsins í undankeppninni fer fram 4. október og munu þær því halda utan strax í fyrramálið.

Allt reynt

Stjórn og þjálfari Þórs/KA hafa, í samstarfi við KSÍ, reynt allt til að ná samningum við mexíkóska landsliðið og þjálfarann og hafa teygt sig til hins ýtrasta til að fresta brottför þeirra og/eða fá þær til baka til þátttöku í leiknum í Þýskalandi, en án árangurs. Kröfu mexíkóska sambandsins verður ekki haggað. Jafnframt hefur verið leitað leiða til að sýna fram á rétt Þórs/KA til að neita þessari kröfu, en svo virðist sem það sé ekki hægt undir neinum kringumstæðum. Athygli vekur í þessu sambandi að ef Þór/KA tækist að slá Wolfsburg út væru leikmennirnir enn með landsliði sínu þegar liðið ætti að spila fyrri leikinn í 16 liða úrslitum.

Stjórn Þórs/KA lýsir yfir miklum vonbrigðum með málalyktir og furðar sig á að mótafyrirkomulag aðildarsambanda FIFA skuli ekki betur skipulagt en svo að verkefni á borð við Meistaradeild Evrópu og álfukeppnir landsliða fyrir HM skuli rekast á með þessum hætti og bitna á árangri félagsliða. Þessi staða skerðir í senn atvinnuréttindi umræddra leikmanna og takmarkar möguleika félagsliða til að ráða til sín leikmenn frá fjarlægum löndum.

Vonbrigði fyrir leikmennina sjálfa og liðið í heild

Þessi niðurstaða er auðvitað gríðarleg vonbrigði fyrir þær sjálfar, sem og liðið allt og stuðningsfólk. Stjórn Þórs/KA vill árétta að leikmennirnir þrír eiga alla okkar samúð vegna þeirrar erfiðu stöðu sem þær eru í og styður þær heilshugar til góðra verka. Þær hafa átt stóran þátt í frábærum árangri liðsins undanfarin misseri, eins og áhugafólk um knattspyrnu þekkir. Rétt er einnig að taka fram að þær eru sjálfar mjög leiðar yfir þessari stöðu og hefðu, ef þær hefðu fengið nokkru um það ráðið, viljað taka þátt í báðum verkefnum, klára tímabilið með Þór/KA og spila með mexíkóska landsliðinu í CONCACAF-keppninni.

Stjórn Þórs/KA lýsir yfir fullum skilningi á vilja leikmannanna til að spila með landsliði sínu og leggja sitt af mörkum til að liðið komist á HM í Frakklandi 2019, en harmar um leið óbilgirni mexíkóska sambandsins. Leikmennirnir eru að ljúka tímabilinu á Íslandi og eru í fullu leikformi, hafa að auki nýlega spilað tvo æfingaleiki með landsliðinu, og hefðu því hæglega getað fengið tilslökun frá sambandinu til að ljúka tímabilinu með sínu félagsliði án þess að það bitnaði á framlagi þeirra til landsliðsins.

Þær Ariana Calderon, Bianca Sierra og Stephany Mayor hafa glatt okkur með frábærum tilþrifum, fagmennsku og vináttu á liðnum misserum og fá bestu þakkir frá Þór/KA fyrir framlag þeirra til velgengni liðsins. Frábærir leikmenn sem hafa lagt gríðarlega mikið af mörkum til liðsins og samherjanna.

Frábærir leikmenn fylla skörðin

Þrátt fyrir þetta áfall leggjum við ekki árar í bát, enda hefur liðið á að skipa sterkum leikmönnum sem fylla munu skörð þeirra sem teknar eru frá okkur. Stjórnin og þjálfararnir bera fullt traust til þeirra leikmanna sem eftir eru og liðið heldur ótrautt út í þau verkefni sem ólokið er á þessu tímabili, berum höfuðið hátt og höfum trú á að við getum gert vel, eins og alltaf.

Fyrir hönd Þórs/KA
Nói Björnsson, formaður stjórnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“