Markvörðurinn Iker Casillas er enn á fullu að spila en hann leikur í dag með liði Porto í Portúgal.
Casillas er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Real Madrid þar sem hann var lengi markvörður númer eitt.
Casillas var í marki Porto í kvöld sem mætti Schalke í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Þetta er 20. tímabil Casillas í Meistaradeildinni sem er nýtt met en hann tekur fram úr Ryan Giggs, fyrrum leikmanni Manchester United.
Casillas er 37 ára gamall í dag en hann spilaði 16 tímabil með Real í Meistaradeildinni áður en hann samdi við Porto.
Casillas hefur einnig unnið keppnina þrisvar en hann fagnaði síðast sigri árið 2014.