Jack Wilshere, leikmaður West Ham United, þekkir það vel að meiðast en hann hefur meiðst ófáum sinnum á ferlinum.
Wilshere samdi við West Ham á frjálsri sölu í sumar en Arsenal taldi sig ekki geta notað hann lengur.
Wilshere er nú að glíma við enn ein meiðslin en hann meiddist á æfingu í síðustu viku.
Miðjumaðurinn missti af leik við Everton í gær en hann hefur farið í aðgerð á ökkla og verður lengi frá.
The Guardian greinir frá því að Wilshere verði frá í allt að sex vikur eftir aðgerðina.
Wilshere byrjaði fyrstu fjóra leiki West Ham í deildinni en mun nú ekki koma við sögu í dágóðan tíma.