Breiðablik og Stjarnan eigast við í bikarúrslitum í kvöld en leikurinn hefst kl. 19:15 en stúkan verður opnuð kl. 18:15.
Miðasala er hafin á Tix Miðasölu og er hægt að kaupa miða með því að smella hér.
Dómarar leiksins.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Aðstoðardómari 1: Frosti Viðar Gunnarsson
Aðstoðardómari 2: Eðvarð Eðvarðsson
Fjórði dómari: Jóhann Gunnar Guðmundsson
Auka aðstoðardómari 1: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Auka aðstoðardómari 2: Jóhnn Ingi Jónsson
Eftirlitsmaður: Þórður Ingi Guðjónsson
Um bikarkeppni KSÍ
Bikarkeppni KSÍ var fyrst haldin árið 1960 og er Mjólkurbikarinn í ár því 59. bikarkeppnin frá upphafi. Fyrstu árin fór keppnin að mestu fram á haustin og jafnvel inn á vetrarmánuðina og var þá jafnan leikið á Melavellinum í Reykjavík. Síðan árið 1975 hefur úrslitaleikurinn hins vegar farið fram á Laugardalsvelli.
Sigursælasta liðið í bikarkeppni KSÍ frá upphafi er KR. Alls hafa KR-ingar unnið bikarinn 14 sinnum. Næstir koma Valsmenn með 11 og Skagamenn með 9 bikarsigra og þá Framarar með 8 bikarmeistaratitla. ÍBV hefur unnið titilinn 5 sinnum, Keflavík 4 sinnum, FH og Fylkir tvisvar. Breiðablik, ÍBA, og Víkingur R. hafa unnið 1 bikarmeistaratitil hvert félag.
Fyrri viðureignir félaganna í bikarkeppni KSÍ
Af 55 innbyrðis mótsleikjum liðanna sem mætast í úrslitum í ár eru aðeins 2 bikarleikir.
Sá fyrri, sem jafnframt var fyrsti mótsleikur liðanna, var í undankeppni bikarkeppninnar 22. ágúst 1970. Leikið var á Melavellinum, heimavelli Breiðabliks á þeim tíma. Leiknum lauk með 11-0 stórsigri Breiðabliks.
Síðari bikarleikur Breiðabliks og Stjörnunnar var í 2. umferð á Kópavogsvelli í júní 1979. Leiknum lauk með 3-1 sigri Breiðabliks. Mörk Blika skoruðu Þór Hreiðarsson (2) og Sigurjón Rannversson, en Sigurjón er faðir Olivers Sigurjónssonar sem leikur nú með Blikum. Það var Guðjón Sveinsson sem gerði mark Stjörnumanna.