Breiðablik og KR eigast við í Pepsi-deild karla nú rétt í þessu en staðan er markalaus í síðari hálfleik.
Margir vilja meina að KR hafi komist yfir í fyrri hálfleik eftir skottilraun frá Óskari Erni Haukssyni.
Óskar Örn átti skot að marki Blika sem Gunnleifur Gunnleifsson var í vandræðum með en náði þó boltanum á endanum.
Talað er nú um hvort boltinn hafi verið inni áður en Gunnleifur náði til hans en það er erfitt að segja til.
Dæmi nú hver fyrir sig en atvikið má sjá hér.
Inni? pic.twitter.com/x54gnz67iD
— Hrannar Már (@HrannarEmm) 7 August 2018
Gulli snertir hlaupabrautina mark eða ekki mark ? #fotboltiNet pic.twitter.com/sus53cUIQW
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) 7 August 2018