Arsenal á Englandi var mjög nálægt því að tryggja sér varnarmanninn Hamza Mendyl frá Lille í sumar.
Frá þessu greinir Christian Heidel, yfirmaður knattspyrnumála Schalke en Mendyl fór þangað í sumar.
Mendyl gerði samning við Schalke á dögunum en hann hafði áður verið í viðræðum við Unai Emery og félaga í Arsenal.
Vesen kom hins vegar upp með að fá atvinnuleyfi fyrir Mendyl á Englandi og komst hann á endanum ekki til enska liðsins.
,,Ef pappírarnir hefðu verið í lagi þá hefði hann farið til Arsernal,“ sagði Heidel.
Mendyl er 20 ára gamall og þykir mikið efni en hann var partur af landsliði Marokkó á HM í sumar.