Getafe í spænsku úrvalsdeildinni ákvað að semja við varnarmanninn Oswaldo Alanis í sumar.
Alanis hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu Mexíkó og var síðasta á mála hjá Guadalajara þar í landi.
Getate ákvað að gefa leikmanninum samning í sumar en liðið leikur í efstu deild á Spáni.
Alanis hefur nú hins vegar yfirgefið Getafe aðeins mánuði eftir að hafa samið við liðið en búið er að rifta samningi leikmannsins.
Þessi 29 ára gamli leikmaður var ekki í plönum þjálfarans Jose Bordalas og fékk því leyfi til að yfirgefa félagið aðeins mánuði eftir að hafa krotað undir.