Alan Shearer, markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, segir að Sergio Aguero, framherji Manchester City, sé besti erlendi leikmaðurinn til að spila í deildinni.
Aguero skoraði þrennu í 6-1 sigri á Huddersfield um helgina en hann hefur nú gert 146 mörk í úrvalsdeildinni.
Argentínumaðurinn er enn langt frá meti Shearer sem skoraði 260 mörk í efstu deild á sínum tíma.
,,Hann var eitraður enn eina ferðina. Hann hefur nú skorað níu þrennur í deildinni og er aðeins tveimur þrennum frá mér,“ sagði Shearer.
,,Hann er besti útlendingurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Frábær framherji sem er ekki með neina veikleika.“