Breiðablik er komið aftur á toppinn í Pepsi-deild kvenna eftir leik við KR í 14. umferð sumarsins í kvöld.
Blikar gerðu tvö mörk með stuttu millibili í Kópavogi en þær Hildur Antonsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu.
Þær grænklæddu eru nú með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar en Þór/KA situr í öðru sætinu. KR er hins vegar við botninn aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Stjarnan var á sama tíma í miklu stuði í Garðabæ er liðið fékk HK/Víking í heimsókn.
Sigur Stjörnunnar var aldrei í hættu en liðið lyfti sér upp í þriðja sæti deildarinnar með 7-1 sigri.
Breiðablik 2-0 KR
1-0 Hildur Antonsdóttir
2-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Stjarnan 7-1 HK/Víkingur
1-0 Guðmunda Brynja Óladóttir
2-0 Katrín Ásbjörnsdóttir
3-0 Guðmunda Brynja Óladóttir
4-0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
4-1 Arna Eiríksdóttir(víti)
5-1 Katrín Ásbjörnsdóttir
6-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
7-1 Birna Jóhannsdóttir